
Skipuleggja tengiliði
Veldu minnið fyrir tengiliðina
Hægt er að vista tengiliði í minni símans ásamt öðrum upplýsingum, eins og
mismunandi símanúmerum og textafærslum. Einnig er hægt að vista mynd, tón eða
myndskeið við tiltekinn fjölda tengiliða.
Á SIM-kortinu er hægt að vista nöfn ásamt einu símanúmeri. Nöfn og númer sem vistuð
eru á SIM-kortinu eru auðkennd með
.
Veldu Valmynd > Tengiliðir > Stillingar > Minni í notkun. Þegar þú velur Sími og
SIM-kort eru nýir tengiliðir vistaðir í minni símans.
Vista nöfn og númer
Til að vista nafn og símanúmer skaltu velja Valmynd > Tengiliðir > Nöfn >
Valkostir > Bæta við tengilið.
Fyrsta númerið sem er vistað er sjálfkrafa gert að sjálfgefnu númeri og auðkennt með
ramma utan um gerð þess (til dæmis ). Þegar nafn er valið úr tengiliðum (til dæmis
til að hringja í viðkomandi) er sjálfgefna númerið notað nema annað númer sé valið.
Leit að tengilið
Veldu Valmynd > Tengiliðir > Nöfn og flettu í gegnum tengiliðalistann eða sláðu
inn fyrstu stafina í nafni tengiliðarins.
Upplýsingum bætt við og þeim breytt
Til að bæta við eða breyta upplýsingum um tengilið velurðu tengiliðinn og svo
Upplýs. > Valkostir > Bæta v. upplýsingum og svo einhvern af valkostunum sem
eru í boði.
Afrita eða færa tengilið á milli SIM-kortsins og minnis símans
1. Veldu Valmynd > Tengiliðir > Nöfn.
2. Veldu tengiliðinn sem þú vilt afrita eða færa og svo Valkostir > Afrita tengilið eða
Færa tengilið.
Afrita eða færa nokkra tengiliði á milli SIM-kortsins og minnis símans
1. Veldu fyrsta tengiliðinn sem þú vilt afrita eða færa og svo Valkostir > Merkja.
2. Merktu hina tengiliðina og veldu Valkostir > Afrita merkta eða Færa merkta.
Afrita eða færa alla tengiliði á milli SIM-kortsins og minnis símans
Veldu Valmynd > Tengiliðir > Afrita tengiliði eða Færa tengiliði.
Eyða tengiliðum
Veldu tengiliðinn og Valkostir > Eyða tengilið.
Til að eyða öllum tengiliðum úr símanum eða minni SIM-kortsins velurðu Valmynd >
Tengiliðir > Eyða öllum > Úr minni símans eða Af SIM-korti.
Tengiliðir
© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.
28

Til að eyða númeri, textaatriði eða mynd tengiliðar skaltu leita að tengiliðnum og velja
Upplýs.. Flettu að upplýsingunum, veldu Valkostir > Eyða og svo einhvern af tiltækum
valkostum.
Tengiliðahópur búinn til
Hægt er að raða tengiliðum í viðmælendahópa með mismunandi hringitónum og
hópmyndum.
1. Veldu Valmynd > Tengiliðir > Hópar.
2. Til að búa til nýjan hóp skaltu velja Bæta við eða Valkostir > Bæta við hópi.
3. Sláðu inn nafn hópsins, veldu mynd og hringitón ef þú vilt bæta þeim við hópinn og
veldu svo Vista.
4. Veldu hópinn og Skoða > Bæta við til að bæta tengiliðum við hópinn.