Nokia 7610 Supernova - Aðgerðir án SIM-korts

background image

Aðgerðir án SIM-korts

Hægt er að nota suma valkosti í símanum án þess að SIM-kort sé í honum, eins og valkosti

skipuleggjara og leiki. Sumir valkostir eru dekktir í valmyndunum og þá er ekki hægt

að nota.

3. Símtöl

Símtöl hringd

Hægt er að hringja á nokkra vegu:
● Sláðu inn símanúmerið, ásamt svæðisnúmeri, og ýttu á hringitakkann.

Til að hringja á milli landa skaltu ýta tvisvar sinnum á * takkann til að hringja úr

landinu (+ táknið kemur í stað alþjóðlega svæðisnúmersins), velja landsnúmerið,

svæðisnúmerið (án 0, ef þörf er á því) og síðan símanúmerið.

● Þegar ýtt er einu sinni á hringitakkann í biðstöðu opnast listi með þeim

símanúmerum sem hringt hefur verið í. Veldu númer eða nafn og ýttu á

hringitakkann.

● Hægt er að leita að nafni eða símanúmeri sem hefur verið vistað í Tengiliðir.

Sjá

„Skipuleggja tengiliði“, bls. 28.

Til að stilla hljóðstyrkinn meðan á símtali stendur er ýtt á hljóðstyrkstakkana.

Móttekið símtal

Til að svara símtali er stutt á hringitakkann eða síminn opnaður. Til að ljúka símtali er

stutt á hætta-takkann eða síminn lokaður.
Ýttu á hætta-takkann til að hafna símtali. Slökkt er á hringitóninum með því að velja

Hljóð af.