Dagbók
Veldu Valmynd > Skipuleggjari > Dagbók.
Núverandi dagur er með ramma. Ef dagurinn inniheldur minnismiða er hann
feitletraður. Til að skoða minnismiða dagsins velurðu Skoða. Til að skoða viku í senn
velurðu Valkostir > Vikuskjár. Til að eyða öllum minnismiðum í dagbókinni velurðu
Valkostir > Eyða atriðum > Öllum atriðum.
Til að breyta stillingum tíma og dagsetningar velurðu Valkostir > Stillingar og úr þeim
valkostum sem birtast. Til að láta gamlar athugasemdir eyðast sjálfkrafa eftir tiltekinn
tíma velurðu Valkostir > Stillingar > Eyða minnis. sjálfv. og úr þeim valkostum sem
birtast.
Minnismiða bætt í dagbók
Flettu að dagsetningunni og veldu Valkostir > Skrifa minnismiða. Veldu gerð
minnismiðans og fylltu út reitina.