Upplýsingaboð, SIM-skilaboð og þjónustuskipanir
Upplýsingaskilaboð
Hægt er að fá skilaboð um margvíslegt efni frá þjónustuveitunni (sérþjónusta). Nánari
upplýsingar fást hjá þjónustuveitunni.
Veldu Valmynd > Skilaboð > Upplýsingaboð og svo einhvern af valkostunum sem
eru í boði.
Skilaboð
© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.
26
Þjónustuskipanir
Með þjónustuskipun er hægt að skrifa og senda þjónustubeiðnir (USSD-skipanir) til
þjónustuveitunnar, til dæmis til þess að gera sérþjónustu virka.
Til að skrifa og senda þjónustubeiðni velurðu Valmynd > Skilaboð >
Þjónustuskipanir. Nánari upplýsingar fást hjá þjónustuveitunni.
SIM-skilaboð
SIM-skilaboð eru sérstök textaskilaboð sem eru vistuð á SIM-kortinu. Hægt er að afrita
eða færa þessi skilaboð af SIM-kortinu yfir í minni símans, en ekki öfugt.
SIM-skilaboð eru lesin með því að velja Valmynd > Skilaboð > Valkostir > SIM-
skilaboð.