
Raddstýrð hringing
Hringdu með því að segja það nafn sem er vistað í 'Tengiliðir'.
Þar sem raddskipanir eru háðar tungumáli, verður þú að velja Valmynd > Stillingar >
Símastillingar > Stillingar tungumáls > Tungumál raddk. og tungumálið áður en
þú hringir.
Til athugunar: Notkun raddmerkja getur verið erfið í hávaðasömu umhverfi eða
í neyðartilvikum, því ætti ekki að treysta eingöngu á raddstýrt val við allar aðstæður.
1. Í biðstöðu er hægri valtakkanum eða neðri hljóðstyrkstakkanum haldið inni. Stutt
hljóðmerki heyrist og Tala núna birtist.
2. Segðu nafn þess sem þú vilt hringja í. Ef síminn ber kennsl á skipunina birtir hann
þær færslur sem passa við hana í lista. Síminn spilar raddskipun færslunnar sem er
efst á listanum. Ef hún er ekki rétt skaltu fletta að annarri færslu.